Kústskaftsdóttir

Ekki veit ég hvernig á því stendur en þegar ég vaknaði í morgun (ég vaknaði ekki „upp" því ég er ekki uppvakningur, held ég) og nennti ekki að reisa höfuð frá kodda strax rifjaðist upp fyrir mér hvað krakkar geta verið skemmtilega rökréttir. Einhverju sinni var kona nokkur Gústafsdóttir á sama stað og eldri dóttir mín og jafnaldra hennar á sama stað -- ætli þær hafi ekki verið svona 6 ára? Nafnið Gústaf var þeim báðum framandi en þær horfðu á konuna háa og tággranna og slógu því föstu án frekari málalenginga að hún væri Kústskaftsdóttir og þar með hafði föðurnafn hennar fengið skiljanlega merkingu. Fleiri nöfnum hagræddu þær að sínum barnaskilningi þarna á þessum stað en ég hirði ekki að tilgreina þau að sinni.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Man eftir mínum syni þegar við sögðum honum að einhver væri hjá Hirti, hann var öskureiður yfir því að við skyldum uppnefna Hjört  hann heitir Hjörtur en ekki Hirti !!!!!

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 8.6.2008 kl. 11:51

2 Smámynd: Beturvitringur

Ómetanlegar elskur.

Já, oftast ræður rökhugsunin þegar merkingin er þeim framandi:  Hvaða nafnleysa er líka Rakel (mér þykir fallegt nafn, en) - ein sagði hana heita "Rakvél"  Önnur kona hét hjá henni "Olía" (Oliva, færeysk) - Ásbjörn varð "Ísbjörn".

Það ætti nú að bókfæra eitthvað af þessum gullmolum, að ekki sé minnst á misskilning á ljóða- og/eða lagatextum. Gaman væri að sjá e-u af þessu safnað saman t.d.: "Við leiðið hans lága, þar leysast ..."  > Þá leið yfir lávarð.  "... því ræningjar oss vilja ráðast á"  > Því ræningjahross vilja ráðast á (ekki vildi ég mæta slíku stóði) :  Að lokum bænin:  "Það er vor, þú sem ert..."

Beturvitringur, 8.6.2008 kl. 23:11

3 identicon

Eins og þér er nú auðvitað kunnugt þá ber einn af þínum gömlu skólafélögum nafnið Þráinn. Eitt sinn var dóttir hans, þá líklega fimm eða sex ára, nálægt útvarpstækinu og var þar verið að lesa tilkynningar. Þetta var á árunum í kringum 1970  og voru þá oft lesnar  tilkynningar undir fororðunum  "frá hinu opinbera". Þá segir hún eitt sinn við mig "mamma, hvað þýðir eiginlega þráinn opinbera?"

Ruth Fjeldsted (IP-tala skráð) 9.6.2008 kl. 13:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Hreiðar

Höfundur

Sigurður Hreiðar
Sigurður Hreiðar

Mosfellingur í húð og hár. Hefur á efri árum tileinkað sér nokkra skoðun á þjóðmálum sem er nýlunda í lífi hans.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...malverk_snh
  • ...1201120009
  • ...1201120013
  • ford nr1 a sl.tiff
  • ...1108070097

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 306009

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband