12.6.2008 | 15:51
Skjóttur, fláður og sláður
Grrr... Í fréttunum í gærkvöldi á St.2 endurtóku þeir Logi og einhver annar fréttamaður, oftar en einu sinni og oftar en tvisvar að bangsinn sem skotinn var um daginn hefði nú verið FLÁDUR!! Og þeir hikstuðu ekki einu sinni á þessu. Mér datt svona í hug hvort enginn vildi taka sig til og slá þá utanundir fyrir þessa ambögu. Þá væri hægt að segja að þeir hefðu verið "sláðir" eins og bangsagreyið vað "fláð"."
Oft er gaman að athugasemdum sem maður fær, svo sem þessari sem ég fékk við síðustu færslu frá konu sem að vísu er bara með ippi, en ég veit gjörla hver hún er þessi og hef bara gaman af að koma athugasemd hennar betur á framfæri.
Það hefði verið við hæfi í þessari frétt -- sem ég reyndar heyrði ekki því ég er lélegur að horfa á sjónvarp og þá sér í lagi á stöð 2 -- að segja að bangsinn hefði verið skjóttur" (af skotinn), þegar hann var sláður af áður en hann var fláður.
Um bloggið
Sigurður Hreiðar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 306294
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þetta er ekkert undarlegt.
Þetta eru sömu mennirnir og tala um "mótmæli gegn", og hluti "varðandi" hitt og "hvað varðar" þetta.
Ásgrímur Hartmannsson, 12.6.2008 kl. 16:25
Spurning hvort sama fólkið mundi skilja gamla brandarann: ,,Þeir áruðu og áruðu til að verða undastir" eða tæki honum bara sem góðri og gegnri íslensku.
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 12.6.2008 kl. 17:58
Eða ef bangsi hefði sagt: Láttu mig kjurt ég á mig sjálft
Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 12.6.2008 kl. 18:12
Nú varstu skrefi á undan mér frændi. Ég átti bara eftir að gefa mér tíma frá útiverkum til að koma "hrifningu" minni á framfæri.
Ég hélt að hann Logi kynni mælt mál frá "fyrra lífi", en það virðist ekki vera.
En það átti annað að hanga á spýtunni hjá mér.
Sömuleiðis, í kvöldfréttum stöðvar tvö í gær, var talað um íbúðarlánasjóð og sagt með aðdáun að hann væri greinilega "ekki dauður úr öllum glæðum"? kv.
Helga R. Einarsdóttir, 12.6.2008 kl. 19:11
...smá innlegg úr fréttum Bylgjunnar í gær eða fyrradag: "tvíburar voru í héraðsdómi dæmdir fyrir að ráðast á annan mann".......sá sem las, held það hafi verið Kristján Már, hikstaði ekki.
Haraldur Bjarnason, 12.6.2008 kl. 21:17
Sko, þetta gutu þeir.
Jón Steinar Ragnarsson, 12.6.2008 kl. 22:34
Þú ert góður í þessu meistari Sigurður Hreiðar
gudni.is, 12.6.2008 kl. 23:17
Hahhahaha, ég missti greinilega af þessu!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 13.6.2008 kl. 00:10
"Ríkisstjórnin hafnar bótum!"
Þetta var fyrirsögn sem varðaði úrskurð Mannréttindanefndar S.þ. um bætur til sjómannanna tveggja sem kærðu.
Líklega hefur varið átt við að ríkisstjórnin hafnaði kröfunni.
Það væri undarleg ríkisstjórn sem hafnaði bótum.
Árni Gunnarsson, 20.6.2008 kl. 19:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.