27.9.2007 | 14:02
Enginn lætur blekkjast
Alltaf má kreista meira út úr bíleigendum og umferðinni. Enginn lætur blekkjast af orðskrúði eins og losun gróðurhúsalofttegunda og auka hlut vistvænna ökutækja.
Ef heiðarlega væri að staðið ætti fréttin að hljóða svona:
Endurskoðiun á allri skattlagningu á ökutæki og eldsneyti stendur yfir hér á landi með það að markmiði að draga ennþá meira fé upp úr vösum bíleigenda með orðaflúri um losun gróðurhúsalofttegunda og auka hlut vistvænna ökutækja. Sambærileg endurskoðun og breytingar á skattlagningu ökutækja og eldsneytis hefur um áratugi verið draumur þeirra sem ráða fyrir ríkiskassanum hverju sinni.
Unnið að endurskoðun á skattlagningu á ökutæki og eldsneyti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Sigurður Hreiðar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þú hittir naglann á höfuðið, félagi. Vegna þessarar áráttu stjórnvalda fyrr og síðar hafa tillögur okkar í Íslandshreyfingunni um lengdargjald af bílum og fleiri umhverfishugsuð gjöld eða ívilnanir alltaf haft þann fyrirvara að slíkt yrði hluti af allsherjar endurskoðun á skattlagningu og gjöldum af ökutækjum svo að heildarálög á bílaeigendur yrðu óbreytt.
Það er hins vegar vegar mikið til í því hjá þér að löngum hafa tillögur um nýjar tekjulindir ríkisins haft þá einu afleiðingu að bætast við þau álög sem fyrir voru.
Ómar Ragnarsson, 27.9.2007 kl. 15:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.