Aldrei mótmæla múslimir

Aldrei vitnast til þess að múslimir mótmæli ódæði af þessu tagi, frömdu eða ófrömdu. Með þögn sinni leggja þeir blessun sína yfir það, allir sem einn.

Meðan enginn þeirra sýnir minnstu andúð á því að hvers konar ódæði sé framið í nafni lífsstíls þeirra -- sumir segja trúar -- verður ekki annað séð en múslimir hvar í heimi sem eru séu samþykkir því til dæmis að reynt sé að eitra fyrir blásaklausu fólki einhvers staðar í veröldinni. Ekki voru það Spánverjar sem vógu Bin Laden.


mbl.is Ætlaði að hefna bin Ladens með eitri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mæl þú manna heilastur Sigurður.  Þetta umburðarlyndi gagnvart voðaverkum í nafni einhvers málstaðar er smitandi fjandi.  Þú hefðir nú samt mátt klára pistilinn því af nógu er að taka.  Eins og til dæmis þessi þögn Íslendinga þegar ríkisvaldið þeirra styður með beinum hætti limlestingar og fjöldamorð á múslimum um víða veröld í nafni frelsis, friðar og mannréttinda.  Þeir eru nú ekki margir hér á landi sem andmæla því að fjöldamorð séu framin í nafni þess lífsstíls sem okkur er tamur.  Það mætti jafnvel segja að Íslendingar séu samþykkir því að verið sé að musrka lífið úr blásaklausu fólki einhverstaðar í veröldinni....... og ekki man ég eftir að hafa séð þig, Sigurður, mótmæla morðstefnu íslenskra stjórnvalda nú upp á síðkastið. 

lalli (IP-tala skráð) 21.8.2011 kl. 00:38

2 identicon

Nei það gera þeir ekki og aldrei hef ég orðið vör við það að Íslensk stjórnvöld "Össur" fordæmi dráp og hryðjuverk sem öfga menn palestínumanna fremja!

Undanfarna daga hafa 70 flugskeytum verið skotið yfir til Ísraels frá Gaza.Og nú fyrir stuttu lést einn og nokkrir eru sárir eftir að flugskeyti lenti í borginni Be'er Sheva í suður ísraels.

Kv.Golda.

Golda Meir (IP-tala skráð) 21.8.2011 kl. 00:45

3 Smámynd: Skeggi Skaftason

Þá var nú munur að sjá fjölmenna mótmælagöngu kristinna hér niður Laugaveg, til að mótmæla voðaverki hins kristna Anders Behring Breivik. Eða hvað, var sú ganga aldrei farin?

Skeggi Skaftason, 21.8.2011 kl. 09:39

4 Smámynd: Sigurður Hreiðar

Eitt er að mótmæla illvirkjum sem unnin eru undir yfirskini tiltekinna trúarbragða og annað að mótmæla voðaverkum vitstola manna sem játa einhverja tiltekna trú en hafa annað yfirskin yfir ódæðum sínum. Man ekki betur en illvirki Breiviks hafi verið hörmuð hér sem annars staðar og þarf ekki kristna til. Göngur sem slíkar eru þá óþarfar, Skeggi. Það er andi samfélagsins sem segir til.

En hvernig stendur á því, Skeggi, að þú finnst ekki í þjóðskrá? Ert þú sami heigull og hinir tveir sem hér gera athugasemdir?

Sigurður Hreiðar, 21.8.2011 kl. 11:41

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Skeggi kemur enn úr skúmaskotinu til að hnýta úr launsátri sínu í allt serm ekki er hægt að flokka undir málstað kommúnistanna gömlu.

Hvað skyldi hann ekki segja um sprenginguna í Pakistan sem drap á annaðhundrað manns? Þar var AlQueda að hefna fyrir BinLaden.

Halldór Jónsson, 21.8.2011 kl. 13:03

6 identicon

Bíddu nú við, múslimir ... eins og í mús-limir.  Hvers konar limir eru það?

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 21.8.2011 kl. 18:14

7 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Bjarne Ö. Hansen. Það eru limir sem notaðir eru í vondum tilgangi.

Hrólfur Þ Hraundal, 21.8.2011 kl. 18:30

8 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Mannréttindi í múslimalöndum eru sennilega ekki upp á marga fiska. Ætli fólk hafi sama rétt að láta skoðanir sínar í ljós og við á Vesturlöndum?

Við skulum minnast þess að þessi mál voru ekki heldur upp á marga fiska hér. Illa voru þeir séðir sem höfðu aðrar skoðanir og viðhorf.

Góðar stundir

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 21.8.2011 kl. 19:41

9 Smámynd: Vilhjálmur Stefánsson

Kommúnistar og Múslimar eru illa séðir og bera með sér dauða og fátækt..

Vilhjálmur Stefánsson, 21.8.2011 kl. 20:16

10 Smámynd: Skeggi Skaftason

Úr Moggafrétt:

Á spjallrásum slíkra vefsíðna hafði Chiba látið í ljós áætlanir um að ráðast að „trúleysingjum “með því að eitra drykkjarvatn þeirra. Hann hafði hug á að láta til skarar skriða á vinsælum ferðamannastöðum á Spáni og á tjaldsvæðum.

Ætlarðu að segja að þessi sé ekki "vitstola"? Finnst þér múslimar þurfi að sverja þennan man af sér?

Það er hins vegar satt að Anders Breivik var í sjálfu sér ekki að fremja fjöldamorð í nafni trúar, heldur í baráttu sinni gegn fjölmenningu. Ekki hef ég mikið séð íslenska andstæðinga fjölmenningar sverja Anders Breivik af sér, sem er annars sammála þeim í andstöðu gegn fjölmenningu. Þeir hafa frekar vilja láta einmitt eins og hann sé bara "vitstola" en ekki einn af þeirra skoðanabræðrum. Þeir mættu sannanlega fordæma að slíkum hryllilegum aðferðum sé beitt í nafni baráttu gegn fjölmenningu.

Skeggi Skaftason, 21.8.2011 kl. 21:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Hreiðar

Höfundur

Sigurður Hreiðar
Sigurður Hreiðar

Mosfellingur í húð og hár. Hefur á efri árum tileinkað sér nokkra skoðun á þjóðmálum sem er nýlunda í lífi hans.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...malverk_snh
  • ...1201120009
  • ...1201120013
  • ford nr1 a sl.tiff
  • ...1108070097

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 305937

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband