1.9.2009 | 16:21
Eimskip Outlet
Ekki ber nú þessi nafngift vitni um mikla reisn eða sköpunargáfu. En við megum þakka fyrir að það var þó ekki Eimskip Outlet!
Hver skyldi annars hafa átt A1988 síðast? Einu sinni átti ég A3118 -- sem var svona um það bil lakasti bíll sem ég hef átt, enda amrískur!
Sláttuvilla leiðrétt 17.53
Nafni Eimskips verði breytt í A1988 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Sigurður Hreiðar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sennilega ártal sem er einhverjum toppanna mjög kært, ekki veit ég hvers veggna en þetta er ekki nafngift á alvöru fyrirtæki, frekar svona leyndó skúffu fyrirtæki
Sverrir Einarsson, 2.9.2009 kl. 09:13
Komið þið sælir.
Björgólfur lagði niður óskabarn þjóðarinnar með formlegum hætti á sínum tíma, þ.e.a.s. það félag sem var stofnað 1914. Eigur þess runnu síðan ínn í annað eins og finna má í fyritækjaskránni hjá RSK. Þannig er þetta ekki óskabarn þjóðarinnar svonefnt. Þetta er hann sagður hafa gert í hefndarskyni vegna Hafskipamálsins hans þar sem hann var sakfelldur fyrir ýmis lögbrot, en kenndi Eimskip um síðar.
Avion Group hf, Flugfélagið Atlanta hf, Flugfélagið Atlanta ehf
Komið sæl.
Björgólfur lagði niður óskabarn þjóðarinnar með formlegum hætti á sínum tíma, þ.e.a.s. það félag sem var stofnað 1914. Eigur þess runnu síðan ínn í annað eins og finna má í fyritækjaskránni hjá RSK. Þannig er þetta ekki óskabarn þjóðarinnar svonefnt. Þetta er hann sagður hafa gert í hefndarskyni vegna Hafskipamálsins hans þar sem hann var sakfelldur fyrir ýmis lögbrot, en kenndi Eimskip um síðar.
Avion Group hf, Flugfélagið Atlanta hf, Flugfélagið Atlanta ehf
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 2.9.2009 kl. 15:06
Athyglisverður listi, prédikari góður, og verðskuldaði vissulega að vera tvítekinn. En ég er ekki viss um að Bjorgólfur hafi geymt það þar til síðar að kenna Eimskip um ófarir sínar með Hafskip, held hann hafi þegar í upphafi séð í hendi sér hvaðan hnoðað kom.
Ég hef jafnvel heyrt að öll þau ósköp sem yfir okkur hafa dunið séu vandlega plottuð refsiaðgerð fyrir Hafskipsmálið forðum. Trúi hver sem vill.
Sigurður Hreiðar, 2.9.2009 kl. 16:57
Sælir á ný. Ég biðst afsökunar á tvítekningunni sem var alveg óvart.
Hafskipsgjaldþrotið var mikið. Eftir að bústjóri þurfti að ná inn eigum í búið með dómsmálum sem hafði verið skotið undan þá náðist samt ekki nema rétt um 20% upp í kröfur.
Hvað skyldu prósentin verða mörg núna ?
þessar upplýsingar eru beint frá skiptaráðanda búsins - Ragnari Hall. Það komu ekki til úthlutunar að raunvirði nema 1/6 hluti í kröfurnar. Þá meira að segja voru margar kröfur sem náðu ekki inn í þrotabúið vegna þess að þeim var lýst of seint þannig að í raun var minna en 1/6 hluti til fyrir kröfum auk stórra krafna sem stofnað var til í dótturfélögum ýmsum sem ekki náðust inn heldur. Sjá meðfylgjandi upplýsingar úr skýrslu skiptaráðanda :
1. Hafskip hf. var með rekstur í mörgum dótturfélögum erlendis, sem gerð voru upp sérstaklega á hverjum stað. Kröfur sem stofnað var til hjá þeim félögum án atbeina móðurfélagsins voru verulegar en komu ekki inn í skiptin hér á landi.
2. Margar verulega háar fjárkröfur komust ekki að við skiptin vegna þess að þeim var lýst of seint í þrotabúið.
3. Verulegur hluti söluverðs eigna þrotabúsins hér á landi fékkst fyrir ófjárhagsleg verðmæti sem kröfuhafar hefðu aldrei getað náð fullnustu úr meðan rekstri félagsins var haldið áfram.
4. Umtalsverðar eignir voru dregnar undir skiptin með málsóknum skiptastjóra, sem ekki hefði náðst til með öðrum hætti en gjaldþrotaskiptum.
Af framangreindu ætti að vera ljóst að gjaldþrotaskipti á búi Hafskips hf. voru óumflýjanleg og að kröfuhafar félagsins töpuðu mjög miklum peningum vegna gjaldþrotsins. Jafnframt sakar ekki að hér komi fram, að í skýrslutökum fyrir skiptarétti Reykjavíkur um ástæður gjaldþrotsins gerðu stjórnendur Hafskips ítarlega grein fyrir þeim erfiðleikum sem steðjað hefðu að rekstri félagsins og leiddu til stöðvunar á rekstri þess. Þar kom hins vegar aldrei fram þau viðhorf að félagið hafi ekki verið gjaldþrota í reynd eða að aðrir aðilar hefðu stuðlað að gjaldþrotinu með óeðlilegum afskiptum.
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 2.9.2009 kl. 18:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.