3.12.2008 | 15:15
Tvær virkilega góðar
Tilkynnt hefur verið um tilnefningar til íslensku bókmenntaverðlaunanna, sem nokkurt veður er árlega gert út af. Úlfhildur Dagsdóttir sagði eitthvað á þá leið í útvarpsfréttum nú í hádeginu, að á tilnefningalistann hefðu að þessu sinni slysast tvær virkilega góðar bækur. -- Ég vona að ég rangtúlki þetta ekki orð hennar um of.
Mig hefur lengi langað að sjá á prenti hvernig bækur veljast til þessara tilnefninga. Minnir að það sé þannig að útgefendur þurfi að borga fyrir að fá bók inn á tilnefningalistann, bæði í reiðufé og með framlagi tiltekins fjölda eintaka svo valnefndarmenn geti lesið bækurnar -- sem er ekki nema sanngjarnt.
En ef þetta er rétt er ekki valið úr öllum útkomnum bókum ár hvert, aðeins þeim sem útgefendum þóknast að leggja í dóm valnefndar.
Ef það er rétt, eru þetta þá með réttu íslensku bókmenntaverðlaunin? Eru þetta þá ekki íslensku bókaútgefendaverðlaunin?
Um bloggið
Sigurður Hreiðar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 306294
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.