28.6.2007 | 08:41
Hægra auga Madeline
Nú fer pdf-skjal um netið þar sem lýst er eftir stúlkubarninu Madeline, sem hvarf í Portúgal fyrir nokkrum vikum meðan foreldrar hennar sátu að snæðingi skammt frá þaðan sem Madeline svaf.
Í skjali þessu er mynd af telpunni ef skjalið er ófalsað þar sem fram kemur sérkenni í hægra auga hennar sem líklega er nokkuð öruggt auðkenni. Einnig stækkun út úr myndinni þannig að sérkennið verður greinilegt.
Varla er við að búast að telpan hafi verið flutt til Íslands. Raunar er óteljandi spurningum ósvarað um hvarf hennar. En ef henni hefur verið rænt, og ef hún er enn á lífi, og ef hún fær á vera meðal fólks, gæti dreifing þessara mynda ef þær eru réttar og raunverulegar orðið til þess að hún fyndist.
Mörg fleiri ef mætti tína til. En þetta er samt tilraun til að finna blessað barnið.
Um bloggið
Sigurður Hreiðar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 306294
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Halló frændi - nú skemmti ég mér. Allt í einu sá ég þig við hliðina á mér á forsíðunni. kv.
Helga R. Einarsdóttir, 28.6.2007 kl. 09:04
Sæl aftur, frænka mín góð -- ég er enn að læra. Kann varla að svara athugasemd. Né heldur finna nokkra sál að fyrra bragði.
En kannski kemur þetta smám saman.
Las pistlana þína og hef áhyggjur af vatnsleysinu eins og þú. Nema ég á engan læk og verð að láta bununa úr slöngunni ráða. Var á Krít um daginn (fyrir hitabylgjuna) og sá hvernig þar er bruðlað með vatn. Síðan hef ég ekki samviskubit af því á okkar vatnsríka landi að láta bara renna.
Heilsa í bæinn
Sigurður Hreiðar (IP-tala skráð) 28.6.2007 kl. 09:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.