Skáld af hauðri horfið

Undarlegt hvað hlutirnir geta skekkst og brenglast í meðförum. Dæmi um það eru alþekkt í örnefnum, sbr. Kálbógrávatn í S-Þing og Grádogg í Mosfellssveit. Reyndar er Grádogg nú komin undir Reykjavík eins og mestur syðsti hluti Mosfellssveitar sem var.

En þetta er líka í söngtextum. Nýlega fékk ég í hendur tónsett ljóð Tómasar Guðmundssonar um hana Dagný, ljóð sem byrjar svona: Er sumarið kom yfir sæinn.

Tvö síðari erindi ljóðsins voru skrifuð svona -- set það með skástrikum þar sem línuskil eiga að vera, því ég kann ekki að skrifa ljóð á bloggið:

Og saman við leiddumst og sungum

með sumar í hjörtunum ungu,

- hið ljúfasta, úr lögunum mínum,

ég las það í augunum þínum.

 

Þótt húmi um hauður og voga,

mun himinsins stjörndýrð loga

um ást okkar, yndi og fögnuð,

þótt andvarans söngrödd sé þögnuð.

 

Nú bar svo við að þarna voru komin brjóst í staðinn fyrir hjörtu. Einneginn „Ég sá það í augunum þínum“.

Líka: „Og húmi um heiðar og voga“. Sennilega af því að kynslóðirnar sem nú eru miðaldra eða yngri vita ekki hvað hauður er.

 

Verandi maður nútímans skaut ég þessu undir dóm Gúggls frænda í Netheimum, en einnig þar var hver ambagan gjarnan látin ríða annarri. Svo nú skýt þeg málinu til bloggvina skráðra og óskráðra: Í hvaða bók Tómasar Guðmundssonar er þetta ljóð að finna? --Þá get ég kannski flett því upp og vitað hvernig Tómas heitinn vildi hafa þetta. Skáldið sjálft er því miður af hauðri horfið.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

 Sæll Sigurður Hreiðar,

Þetta ljóð er ekki að  finna í  heildarútgáfu ljóða  Tómasar sem  AB  gaf út  1989. Kannski hefur það  aldrei  ratað í ljóðabók og má það heita einkennilegt.

Eiður (IP-tala skráð) 19.4.2009 kl. 15:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Hreiðar

Höfundur

Sigurður Hreiðar
Sigurður Hreiðar

Mosfellingur í húð og hár. Hefur á efri árum tileinkað sér nokkra skoðun á þjóðmálum sem er nýlunda í lífi hans.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...malverk_snh
  • ...1201120009
  • ...1201120013
  • ford nr1 a sl.tiff
  • ...1108070097

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 305939

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband