22.11.2007 | 19:17
Voru þeir -- HAMAS?
Getur verið að það hafi verið hált? Og bílarnir ekki á loftbóludekkjum? Eða ætli ökumennirnir hafi ekki verið utanbæjarmenn -- kannski HAMAS (=helvítis aðkomumenn að sunnan)?
Tveir á slysadeild eftir umferðaróhapp á Akureyri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Sigurður Hreiðar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 306295
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Mér finnst tryggast að fara bara á fótum í vinnuna - negldum fótum svo allt sé öruggt. kv.
Helga R. Einarsdóttir, 22.11.2007 kl. 22:31
Það var ekkert hált hér í gær, mér gekk minnsta kosti mjög vel á heilsársdekkjunum mínum HAMAS er flott
Jónína Dúadóttir, 23.11.2007 kl. 08:07
Nú þekki ég ekki til þessa tiltekna máls en mér finnst einkar ósmekklegt að vera að blogga með þessum hætti um persónulegar hörmungar og áföll sem fólk verður fyrir. Tveir á slysadeild og væntanlega mikið eignatjón. Þetta er ekki tilefni til að vera með grín eða aulahúmor.
Halldór A. (IP-tala skráð) 23.11.2007 kl. 08:47
Halldór A: þetta er hvorki aulahúmor né grín heldur hugleiðing af gefnu tilefni í framhaldi af skætingi og hroka sem HAMAS á vísan frá innfæddum ef hann vogar sér að hugleiða umferð og gatnamál á Akureyri.
Í þessi tilviki gaf fréttin sem bloggað var út frá ekki til kynna persónulegar hörmungar -- en vissulega eitthvert eignatjón.
Sigurður Hreiðar, 23.11.2007 kl. 09:04
Ég veit aldrei hvenær þetta fer alla leið, ætla að reyna aftur, þetta er bara smá upplýsing. Í gær var hér marautt og bílarnir, jeppi og T.Yaris, skullu saman á umferðaljósum, ljósaskiftin eru viðsjárverð á þessum tíma árs þegar sólin er ekki alveg horfin. Ég var í næsta bíl og fæ enn skelfingarkipp þegar mér verður hugsað til þessa. Það merkilega var að þó báðir bílar færu í klessu fékk fólkið ekki skrámu. Það er víða pottur brotinn hvað gatnamálin varðar hér á þessu landi okkar, ég held þar sé skást að hver éti sitt. Stundum er talað um að steinar og glerhús eigi ekki vel saman. Kv.
GH (IP-tala skráð) 23.11.2007 kl. 19:55
Nákvæmlega, GH. Mér var sagt að sama kvöldið og ég fann að aðgerðaleysi gatnamála á Akureyri vegna mikillar hálku hafi bíll farið ofan brekkuna fram hjá kirkjunni. En af því ég fann að þessu voru einhverjir snillingar með hreyting um vanhæfni HAMAS gagnvar viðsjárverðri færð. Svo ég mátti til að vísa því grjótkasti til föðurhúsanna -- í sitt eigið glerhús.
Auðvitað verða óhöpp og auðvitað eru mönnum mislagðar hendur við akstur sem annað. En það er engan veginn bundið við landshluta. Það var það sem ég vildi sagt hafa. Og benda á að gatnamál á Akureyri eru að mínu viti ekki í góðu lagi, hvorki í hálku né þurru færi.
Sigurður Hreiðar, 23.11.2007 kl. 21:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.