Skiptir máli hverju er lýst…

Væri ekki meira áríðandi að gefa greinargóða lýsingu á því sem maðurinn beraði? Eins og einhver sagði hér í athugasemd við þessa frétt: hann á ábyggilega föt til skiptanna.

Kannski er hægara um að tala en í að komast. Einu sinni kom ég í grandaleysi út af bás á almenningssalerni á járnbrautarstöðinni í Wiesbaden og óð þá beint í flasið á manni sem beraði kynfæri sín fyrir okkur hina karlana á klóinu. Ég man eftir skelmislegu glottinu á manninum og ég man eftir beinstífu tippinu sem vísaði örlítið til hægri og var ljótt eins og tippum er títt - en skammi mig sem ég man eftir fötum mannsins, samt var hann örugglega í fötum. -- Að öðru leyti man ég það helst að ég lét undir höfuð leggjast að þvo mér hendurnar í þetta skipti en yfirgaf þennan félagsskap hið snarasta…


mbl.is Maður beraði sig við stúlkur í Grafarvogi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hreiðar hann er hreðjastór,
hrikalega vaxinn er niður,
hrellti stóran stelpnakór,
standpínan er hans siður.

Opni dyravörðurinn (IP-tala skráð) 30.7.2007 kl. 17:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Hreiðar

Höfundur

Sigurður Hreiðar
Sigurður Hreiðar

Mosfellingur í húð og hár. Hefur á efri árum tileinkað sér nokkra skoðun á þjóðmálum sem er nýlunda í lífi hans.

Færsluflokkar

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Nýjustu myndir

  • ...malverk_snh
  • ...1201120009
  • ...1201120013
  • ford nr1 a sl.tiff
  • ...1108070097

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband