22.6.2007 | 14:16
Tilkynni hr. höfuðsmaður
Tilkynni, hr. höfuðsmaður
Þannig hóf góði dátinn Svæk gjarnan orðræður sínar þar sem hann kom á vettvang. Ég geri mér nú þetta ávarp að mínu þegar ég kem í fyrsta sinn inn sem bloggari.
Tilkynni hr. höfuðsmaður ég ætla að vera með.
Tek fram, til að fyrirbyggja hugsanlegan misskilning, að í mínum huga eru konur líka menn, þannig að kona getur allt eins verið höfuðsmaður.
Hins vegar getur karl ekki orðið kona nema eftir heilmikinn og örugglega erfiðan prósess.
Ég hef nú um skeið fylgst talsvert með bloggi, ekki síst út frá moggablogginu. Ærið er það nú misjafnt, en hafa komið býsna góðir sprettir og lægðir séu þar inn á milli.
Hvers vegna er ég þá að ryðjast inn á völlinn?
Einhvern tíma var eftir einhverjum haft: Þegar aðrir þenja kjaft, þá vil ég fá að tala líka. Mig minnir að það hafi verið minn góði vinur, kennari og samstarfsmaðu Snorri á Hvassafelli (raunar löngu fluttur í Borgarnes) sem kenndi mér þetta. En það er eins og talað út úr mínu hjarta.
Ætla má að ég muni fyrst og fremst spjalla um það sem mér hefur verið hvað hugleiknast. Nefni þar bíla og umferðarmálefni (lítið kannski um mótorhjól, það eru ekki tæki að mínu skapi). Nefni líka íslenskt mál og meðferð þess. Kannski líka eitt og annað um útiveru og veðurfar bara þetta almenna basl sem maður verður að stauta við á langri leið. Og segja sögur, ef þannig stendur á snúningi.
Ég geri mér ljóst að þetta getur orðið skrykkjótt eins og mér sýnist raunar að það sé hjá mörgum. Stundum tvö þrjú blogg á dag, stundum eyður upp á nokkrar vikur. Það er rökrétt. Stundum flóir yfir, en það er líka tilgangslaust að kreista tóma skjóðu.
Markmiðið hlýtur að vera hjá mér eins og öðrum bloggurum að hafa áhrif á samfélagið með öðrum orðum, láta ljós mitt skína.
Megi því auðnast að bregða birtu á lífið.
Um bloggið
Sigurður Hreiðar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (1.4.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 306438
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.