31.7.2010 | 17:51
Hafið augun hjá ykkur ef þið ætlið að kaupa í Krónunni
Undanfarið hef ég látið mér vel líka að eiga samskipti við Krónuna og þótt verð þar á almennt séð ekki stórum verra en í öðrum álíka búðum.
En
núna rétt áðan stóð til að kaupa lauk. Þið vitið, venjulegan hvítan lauk sem oftast er keyptur með brún, ónýt lauf yst.
Jú, hann var til, forpakkaður í netsmokk. Stærðin svona í minna meðallagi. En einn þriggja lauka smokkur átt að kosta 185 krónur.
Ég saup hveljur.
Og fór í hina búðina. Þar var laukur til í lausu, að vísu heldur óhrjálegur svona almennt séð. Samt náði ég að velja mér þar 9 lauka, stærð í minna meðallagi. Skammturinn kostaði 113 krónur.
Boðskapurinn er: Hafið augun hjá ykkur ef þið ætlið að kaupa í Krónunni.
Um bloggið
Sigurður Hreiðar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Smokklaukurinn er alltaf dýrari, en það er erfitt orðið að finna ætan lauk í búðunum. Ég fer jafnvel í búðir fína fólksins (Nóatún / Samkaup og þess háttar fínerí) sérstaklega til að fá betri lauk. Helst er laukbragð af stóra lauknum sem kallaður er "hótellaukur".
Georg O. Well (IP-tala skráð) 31.7.2010 kl. 22:13
Sigurður, það er ekki gott að tala svona einhliða um ákveðna matvörukeðju, það er lélegt season fyrir lauk þessa stundina, sem og vínber!!
Guðmundur Júlíusson, 1.8.2010 kl. 00:25
Ég held að það sé sama hvert við förum, það er allt dýrara á Íslandi nema vinna fólks sem skapar gjaldeyri.
Vegna umsagnar Georgs O. Well þá áttaði ég mig á því að ég hélt að ég væri bara orðin svo gamall að ég væri hættur að finna bragð.
En vinur minn Pólskur færa sinn lauk frá vinum í Póllandi og segir að (Íslensk laukur virka ekki neitt).
Hrólfur Þ Hraundal, 1.8.2010 kl. 06:49
Maður hálf tárast yfir öllu þessu
Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 1.8.2010 kl. 08:46
Laukrétt!
Dingli, 1.8.2010 kl. 09:02
Það er ekki uppskera á lauk fyrren seinna í haust.
Þetta hjá Sigurði er eins og að kvarta yfir mjúkum rófum eða kartöflum í mars/apríl
Enda fékk hann litlu betra í "hinni búðini" Sem segir að þar sé sennilega minna að gera fyrst eitthvað fékkst.
En rétt hjá Georg, hótellaukutinn er oft betri !
AFB (IP-tala skráð) 1.8.2010 kl. 09:03
Gaman að fá þessar athugasemdir. En Guðmundur: þegar ég nafngreini tiltekin fyrirtæki í bloggi mínu er það af ráðnum hug og mér finnst þau eiga það skilið, til hins betra eða verra. Núna finnst mér Krónan eiga skömm skilið fyrir þá verðlagningu sem ég nefndi. Þó þetta sé kannski ekki góður lauktími væri t.a.m. hægt að bjóða fólki að velja sér sjálft lauk í poka. Og sú verðlagning að hver miðlungslaukur eða tæplega það kosti 60 krónur finnst mér út úr kú.
Og AFB: Ef ég fæ ekki nema linar rófur og kartöflur frá vormánuðum fram á haust skal ég sannarlega kvarta. Og þykist hafa nokkurn rétt til; meðan þessi vara var framleidd og geymd heima hjá mér í gamla daga var hún æt frá uppskeru til uppskeru. Og síðan hefur tækni og aðstæðum farið fram.
Sigurður Hreiðar, 1.8.2010 kl. 10:22
alveg sammála því að maður eigi að hafa augun hjá sér þegasr maður verslar í krónunni.
ætlaði áðan að kaupa matarlit í litlum flöskum. verðið í krónunni var c.a 330 krónur.
ekki var til eitt sem mig vantaði í krónunni þannig að ég kom við í Bónus til að grípa það með. Það var í sömu deild og matarliturinn þannig að ég ákvað að tékka á verðinu í bónus. Þar kostaði sama vara (sami litur) 120 krónur.
Þetta er ekki fyrsta skiptið sem ég tek eftir svona og ekki annað skiptið. En þetta er hinsvegar síðasta skiptið sem ég versla í Krónunni.
lágvöruverslun ?? góður þessi. Hef séð dýrari vörur hjá Krónunni heldur en hjá "kaupmanninum á horninu". Og það ítrekað!....þott ótrúlegt sé :S
Einar (IP-tala skráð) 1.8.2010 kl. 17:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.