10.5.2010 | 17:03
Hvað er mettill?
Fyrirgefið mér fáfræðina -- en hvað er mettill?
-- Nú er búið að breyta þessu orði í möttul og þar með eyðileggja bloggið.
Það gerir sosum ekkert til.
Enn kemur kvika úr möttlinum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Sigurður Hreiðar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 306295
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Einhverskonar orðmyndun af möttli --- giska ég á.
Dingli, 10.5.2010 kl. 17:38
Það þykir mér líklegt, því nú er búið að breyta í það orð í fréttinni og þar með gera þetta blogg ónýtt!
Farið hefur svo sem fé betra.
Sigurður Hreiðar, 10.5.2010 kl. 17:45
Þetta er svo sem ekki í fyrsta sinn sem bloggarar "prófarkalesa". Gaman að því :)
Kolbrún Hilmars, 10.5.2010 kl. 18:08
Manni dettur í hug eitthvað sem er tengt óhóflegu áti feitmetis
Finnur Bárðarson, 10.5.2010 kl. 18:42
Finnur, áttu við að þeir sem eru sí-mettir, teljist til mettla?
Dingli, 10.5.2010 kl. 19:31
það er nú einnig farið frekar frjálslega með gosmökkinn.... :)
HP Foss, 11.5.2010 kl. 08:38
Sælir.
Það merkilega er að möttull beygist ekki eins og mökkur, þó þau orð líkist hvoru öðru í framburði. T.d. í þgf. er möttull ,,möttli", en mökkur er ,,mekki". Sjá á ordabok.is
Kv. Sigurjón
Sigurjón, 11.5.2010 kl. 15:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.