Hverjir hvetja til greiðsluverkfalls?

Mér þykir verst að Steingrímur Jóhann skuli ekki nafngreina þá ólánsmenn sem „hvetja til örþrifaráða eins og greiðsluverkfalls“. Mér er nefnilega ekki ljóst hverjir þeir eru. Mér heyrist og sýnist að flestir málsmetandi menn sem tjá sig um þetta, ráði fólki frá greiðsluverkfalli, enda getur það aldrei gert annað en auka á vandræðin.

Hins vegar væri gott ef nefndur Steingrímur Jóhann gæfi sér tíma NÚNA, frá ráðslagi um það hvernig hann ætlar að smeygja sér undan því kosningaloforði að fara ekki í ESB-viðræður, til þess að segja þeim sem eiga að gera skuldaskil einmitt þessa dagana nákvæmlega hvernig þeir geti farið að.

En það er ekki rétt sem þarna stendur. Stjórnvöld hafa EKKI skilning á þessum vanda fólks og þeim hryllingi sem það stendur frammi fyrir móti öllum rétti lánveitenda en öllum forsendum gjörbreyttum frá því lánið var tekið.

Því sá vandi brennur ekki persónulega á því fólki sem kalla má stjórnvöld. 


mbl.is Varar við örþrifaráðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hlédís

Við kjósum sama fólkið aftur og aftur og hlöðum á það fé fyrir þingsetu. Auðvitað veit fólkið ekki hvernig almenningur hefur það.

Hlédís, 4.5.2009 kl. 20:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Hreiðar

Höfundur

Sigurður Hreiðar
Sigurður Hreiðar

Mosfellingur í húð og hár. Hefur á efri árum tileinkað sér nokkra skoðun á þjóðmálum sem er nýlunda í lífi hans.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...malverk_snh
  • ...1201120009
  • ...1201120013
  • ford nr1 a sl.tiff
  • ...1108070097

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 305922

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband